Í dag voru nemendur í 8. og 9. árgangi kvaddir með pomp og prakt þegar þau fengu vitnisburðarskírteinin sín afhent. Inga skólastjóri talaði til nemenda og hvatti þá m.a. til að lesa í sumar og nefndi allt það sem fæst með því að lesa. Við lestur upplifum við ævintýri á hverri blaðsíðu en um leið eflum við hugrekki okkar og sjálfstraust.
Á þessu þriðja starfsári Kóraskóla stunduðu 274 nemendur nám við Kóraskóla, 102 í 10. árgangi, 9. árgangi 91 og í 8. árgangi 81 nemandi. Nú er hinsvegar sumarfrí nemenda hafið og óskum við nemendum okkar og forráðamönnum gleðilegs sumars.










