Hópur nemenda í Kaupmannahöfn

Þessa dagana er hópur nemenda í Kóraskóla sem eru á valnámskeiðinu Dönsk menning og hygge staddur í Kaupmannahöfn. Þetta er dönskuval fyrir nemendur í 10. bekk og teygir valið sig yfir allan veturinn. Í þessu vali kynnast nemendur danskri menningu og dönskunni betur. Nemendur hafa verið í samskiptum við jafnaldra sína í grunnskóla í Kaupmannahöfn í vetur sem þeir svo heimsóttu í gær. Á myndinni sem fylgir fréttinni eru þeir með þeim að læra nokkra leiki í Valby park.

Markmið námskeiðsins er;

  • Að efla menningarlæsi, tungumálalæsi, orðanotkun nemenda og skilning í daglegu tali. 
  • Að nemendur kynnist dönskum hefðum, dönskum nemendum og fái það tækifæri að upplifa danska menningu beint í æð með ferð til Kaupmannahafnar. 
  • Að nemendur fái tækifæri til að nota dönskuna eins og hún er notuð í daglegu lífi. 
  • Að nemendur viðhaldi og efli tengsl við Danmörku og danska menningu.

Námskeiðið er undir dyggri stjórn dönskukennara í Kóraskóla, þeirra Amöndu Mist Pálsdóttur og Ingu Vigdísar Baldursdóttur, sem eru jafnframt fararstjórar í þessari ferð.

Posted in Fréttaflokkur.