Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 er kveðið á um að skólinn skuli haga störfum sínum í samræmi við námsþarfir hvers nemanda, í almennum grunnskóla án aðgreiningar og án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis. Skóli án aðgreiningar er opinber menntastefna á Íslandi og í Aðalnámskrá grunnskóla 2011 kemur fram að í skóla án aðgreiningar ríki viðhorf sem einkennist af virðingu fyrir rétti allra nemenda til virkrar þátttöku í námssamfélagi heimaskóla. Þar er borin virðing fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum nemenda og leggja skal áherslu á að útrýma öllum gerðum mismununar og aðgreiningar í skólum.
Stoðþjónusta Kóraskóla byggir á þverfaglegu samstarfi í árgangateymum skólans. Teymin eru skipuð umsjónarkennurum, fagaðilum úr stoðþjónustu og starfsfólki skóla.
Árgangateymunum er falið að mæta þörfum nemendahópsins þar sem sjónum er beint að þjónustuþörf nemendanna en ekki greiningum, þ.e. formleg greining er ekki forsenda þjónustu. Árgangateymunum er ætlað að skapa menningu sem virðir og fagnar margbreytileikanum. Teymin kortleggja, skipuleggja og framkvæma nám og kennslu fyrir allan nemendahópinn og koma til móts við stuðningsþarfir hvers og eins nemanda. Árgangateymin eru misfjölmenn, allt eftir þörfum nemendahópsins fyrir þjónustu og/eða stuðning.
Námsver: Lagt er upp úr því að bjóða fjölbreyttar aðstæður til náms og eru í skólanum lítil rými sem standa ákveðnum nemendum til boða með fagaðila í ákveðnum kennslustundum eða hluta úr skóladegi.
Íslenska sem annað mál: Er ætluð nemendum sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli eða hafa dvalið langdvölum erlendis.