Ellefu nemendur frá Kóraskóla eru nýkomnir heim eftir vikudvöl á Spáni. Þessir nemendur ásamt tveimur kennurum eru þátttakendur í Erasmus verkefni ásamt nemendum og kennurum frá Spáni, Grikklandi og Tyrklandi. Verkefnið sem þau vinna að heitir Pheonix Rising Strong. Nemendur okkar dvöldu hjá fjölskyldum í bæ sem heitir Fernán Núñes þar sem þeir fengu að taka þátt í skólastarfinu í bænum. Það er skemmst frá því að segja að ferðin gekk ákaflega vel og fengu nemendur okkar einstakar móttökur heimamanna. Eftir þrjár vikur fáum við svo nemendur frá þeim til okkar og hlökkum mikið til. Við segjum nánar frá ferðinni í fréttablaðinu okkar í lok apríl.

