Þriðjudaginn 13. maí fór fram Barnaþing með bæjarstjórn Kópavogs. Þar voru rædd þau mál sem hlutu flest atkvæði á Barnaþingi Kópavogs í mars sl.
Fulltrúar Kóraskóla á þinginu voru Eyjólfur Örn Eyþórsson, Hugrún Lilja Gottskálksdóttir og Eva María Ævarsdóttir og fluttu málið „Frítt í strætó fyrir börn í Kópavogi„. Þau voru mjög vel undirbúin og fluttu mál sitt af metnaði og áræðni. Glæsilegur hópur sem við í Kóraskóla erum mjög stolt af. Færum við þeim okkar bestu þakkir fyrir.