Kópurinn – viðurkenning fyrir framúrskarandi skólastarf

Árlega er veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi skóla- og frístundarstarf í Kópavogi. Að þessu sinni fengu fimm verkefni viðukenningu og var eitt þeirra frá kennurum í Kóraskóla, samþætt  verkefni um stjórnmál  „Rödd fólksins“.  Höfundar eru þær Tanja Rut Hermansen, Elsa Sigrún Elísdóttir, Elín Hulda Harðardóttir, Anna Sólveig Snorradóttir og Inga Vigdís Baldursdóttir. Við erum óskaplega stolt af okkar kennurum og auðvitað nemendunum sem tóku þátt í verkefninu. Óskum við þeim innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu.

Posted in Fréttaflokkur.