10. árgangur í starfskynningum

Nemendur í 10. árgangi heimsækja nú fyrirtæki vítt og breytt um höfuðborgarsvæðið í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi þeirra. Nemendur fengu að velja fyrirtæki til að heimsækja en stærstu hóparnir fóru í heimsókn til Lögreglunnar í Reykjavík, Landhelgisgæslunnar, Saga Film og á Bíll.is. Við viljum senda öllum fyrirtækjunum okkar bestu þakkir fyrir að taka vel á móti nemendum okkar.

Posted in Fréttaflokkur.