Stelpur, stálp og tækni

Háskólinn í Reykjavík hvetur konur til náms í tæknigreinum og liður í því er verkefnið Stelpur, stálp og tækni, þar sem stelpum og stálpum úr 9. bekkjum grunnskóla er boðið í háskólann og tæknifyrirtæki.

Markmiðið með viðburðinum er að kynna tækni sérstaklega fyrir stelpum og stálpum í 9. bekk grunnskóla og opna þannig augu þeirra fyrir þeim framtíðarmöguleikum sem tæknigeirinn hefur að bjóða og brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækni.

 

Posted in Fréttaflokkur.