Í gær héldum við sannkallaða vorhátíð. Nemendum í 7. bekk Hörðuvallaskóla var boðið að taka þátt en þau stefna í Kóraskóla næsta haust og því tímabært að kynnast nýjum aðstæðum. Dagurinn var skemmtilegur fyrir utan veðrið. Það minnti frekar á haust en vor. Nemendur létu það ekki á sig fá og spiluðu fótbolta af miklum móð fyrir hádegi. Þá brast á dýrindis pylsuveisla og svo tók við gleði í boði félagsmiðstöðvarinnar Kúlunnar. Stærðarinnar hoppukastala var komið fyrir í knatthúsinu og ýmsum spilum og afþreyingu stillt upp í salnum. Einnig var nemendum boðið upp á candy flos en því miður fengu ekki allir því vélin gaf upp andann á ögurstundu. Verðlaun voru veitt fyrir fótboltakeppnina og var það Gula liðið sem stóð uppi sem sigurvegari.