Kristján Gíslason ,,Hringfari“ hélt eftirminnilega kynningu 12. febrúar fyrir nemendur Kóraskóla um ferð sína hringinn í kringum heiminn á mótorhjóli. Strax í upphafi náði hann athygli allra með því að sýna fjölbreyttar myndir frá löndum sem hann heimsótti. Hann sagði sögur af fólkinu sem hann hitti, menningunni sem hann kynntist og þeim ævintýrum sem hann lenti í á leiðinni. Einnig talaði hann um einveruna en ferðalagð tók um 10 mánuði og var hann einsamall allan tímann.
Hann lýsti bæði gleðistundum og áskorunum, eins og þegar hann þurfti að keyra um langa eyðimerkurvegi, takast á við slæmt veður og mikinn hita eða laga mótorhjólið sitt við krefjandi aðstæður Með lifandi frásögn og húmor lét hann nemendur finna fyrir spennunni og óvissunni sem fylgdi ferðalaginu ásamt kærleikanum sem kann fann alls staðar þar sem hann kom. „Það að upplifa alla þessa gleði, hamingju og einfaldleika í sumum af fátækustu héruðum þessa heims er eitthvað sem breytir manni sem manneskju. Það sem ég hef lært er að heimurinn er ekki jafnslæmur og maður myndi halda út frá umfjöllun fjölmiðla. Ég hef nær alls staðar upplifað ótrúlega hjálpsemi, samheldni, kærleika og hreina manngæsku. Stærsta lexían er að fólk er gott. Í raun er 99% af fólki sem ég hef hitt um allan heim ekki bara gott, það er frábært.“
Hann hvatti nemendur til að fylgja draumum sínum, sýna náunganum kærleika, vera hugrakka og gefast ekki upp þó að hindranir verði á vegi þeirra.
Allir nemendur voru áhugasamir allan tímann, hlustuðu af athygli og fengu tækifæri til að spyrja spurninga í lokin. Kynningin var ekki bara fræðandi heldur líka hvetjandi og skemmtileg.

