Útskrift 10. árgangs fór fram í dag frá Lindarkirkju. Hátíðin var sérlega hátíðleg og falleg og var þáttur nemenda í athöfninni stór. Þrjú tónlistaratriði voru flutt við athöfnina. Óðinn Jarl v d Heerik Jónsson spilaði á hörpu. Hugrún Lilja Gottskálksdóttir söng við undirleik Kristínar Milu Busgeeth og Eva Björk Austmann Heiðarsdóttir söng við undirleik Árna Atlasonar og Sigrúnar Önnu Viggósdóttur. Formenn nemendafélags Kóraskóla þau Ellen Björnsdóttir og Oliver Hergils Traustason fluttu ræðu og afhentu kennurum árgangsins gjafir og kennararnir fluttu á móti lofræðu um nemendur. Fyrir hönd nemenda fluttu svo þau Bríet Hrefna Guðlaugsdóttir og Árni Bergur Guðmundsson ræðu þar sem þau rifjuðu upp góðar minningar um Kóraskóla. Að endingu fengu nemendur vitnisburðarskjölin sín og Inga Fjóla skólastjóri sleit skóla með árnaðaróskum til nemenda.




























