Í Kóraskóla sér Erlendur Egilsson sálfræðingur um sálfræðiþjónustu. Sálfræðingur annast greiningar á börnum og ráðgjöf til foreldra þeirra. Þá sinnir sálfræðingur viðtölum við börn og unglinga og situr í nemendaverndarráði Kóraskóla. Sálfræðingur skólans sinnir aðallega tilfinningalegum, náms- og félagslegum erfiðleikum barna í skólanum. Ef óskað er eftir aðstoð sálfræðings fyllir umsjónarkennari út umsókn sem fer fyrir nemendaverndarráð sem ræðir málið og tekur ákvörðun um hvort vísa eigi málinu til sálfræðings. Ávallt skal liggja fyrir samþykki forráðamanna áður en afskipti sálfræðings hefjast um málefni barnsins. Haft er samband við foreldra þegar röðin kemur að þeim og þeir boðaðir í viðtal. Foreldrar geta einnig leitað til sálfræðings án milligöngu umsjónarkennara.
Erlendur útskrifaðist sem sálfræðingur frá Árósarháskóla árið 2010 og hóf störf sem slíkur sama ár á Landspítala Háskólasjúkrahúsi (LSH). Hann starfaði fyrst um sinn á göngudeild Barna- & unglingageðdeildar LSH og færði sig svo yfir á Barnaspítla Hringsins.
Hvað rannsóknarstarf varðar hefur Erlendur sinnt rannsóknum á þroska- & hegðunarrannsóknum, s.s. einhverfurófsröskunum og í doktorsnámi sínu skoðað virkni snjallsímalausnar við ofþyngd og offitu hjá börnum. Erlendur hefur verið þróunarstjóri fyrir sænsk-íslenska heilbrigðishugbúnaðarfyrirtækið SidekickHealth samhliða rannsóknarstörfum.
Hann hefur unnið með afreksíþróttafólki í störfum fyrir Íþrótta – & ólympíusamband Íslands, Íþróttasamband fatlaðra og sjálfsstætt starfandi sálfræðingur. Erlendur hefur sinnt sálfræðiþjónustu fyrir hópíþróttalið efstu deilda, landslið og einstaklingsíþróttafólk í fremstu röð ýmissa íþróttagreina. Sem sjálfsstætt starfandi sálfræðingur sérhæfir hann sig í þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra auk þjónustu við afreksíþróttafólk á öllum aldri.