BEKKJARFULLTRÚAR (árgangafulltrúar)
Bekkjarfulltrúar í 8.árgangi eru:
Bekkjarfulltrúar í 9. árgangi eru:
Bekkjarfulltrúar í 10. árgangi eru:
Bekkjarfulltrúar eru kosnir í upphafi skólaárs á haustkynningum Kóraskóla, ár hvert, 6-8 bekkjarfulltrúar að lágmarki.
Hlutverk bekkjarfulltrúa:
- Hlutverk bekkjarfulltrúa er að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar/árgangs. Bekkjarfulltrúar eru kosnir af foreldrum eða tilnefndir í samráði við fyrri bekkjarfulltrúa.
- Bekkjarfulltrúar kalla saman foreldra barnanna í bekknum. Ræðir við þá um markmið og framkvæmd bekkjarstarfs á komandi vetri. Bekkjarfulltrúar eru tengiliður umsjónarkennara við foreldra og er ætlað að tryggja gott samstarf þar á milli.
- Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir foreldra við kennara og kemur sjónarmiðum þeirra á framfæri þegar þess gerist þörf.
- Bekkjarfulltrúar eru reiðubúnir til að aðstoða kennarann við að skipuleggja þátttöku foreldra í skólastarfinu, t.d. í tengslum við vettvangsferðir, starfskynningu og heimsóknir foreldra í bekkinn.
- Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir foreldra innbyrðis, hafa frumkvæði að því að sem flestir foreldrar séu virkir í bekkjarstarfinu. Best er að skipta verkefnum með foreldrum í upphafi skólaárs, t.d. umsjón bekkjarskemmtana. Gott er að mynda hópa nokkurra foreldra til að vinna verkefnin.
- Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir foreldra við stjórn foreldrafélagsins.
- Bekkjarfulltrúar hlusta eftir sjónarmiðum nemenda varðandi bekkjarstarf og bekkjaranda, t.d. með því að fá hugmyndir frá þeim um bekkjarskemmtanir.
Hugmyndabanki að viðburðum fyrir nemendur Kóraskóla
Viðburðina er hægt að hafa í skólanum, heima hjá einhverjum, í náttúrunni eða leigja sal. Einnig er hægt að athuga með að fá Hátíðarsal Kórsins en leggja þarf fram ósk um slíkt við ritara skólans. Það er um að gera að virkja sem flesta foreldra til þátttöku í undirbúningi og svo má að sjálfsögðu reyna að fá kennara með sér í lið líka, hvort sem það eru umsjónarkennarar eða aðrir.
Skipuleggjum viðburði í árgangnum / bekkjum
Höfum frumkvæði að skipulagningu skemmtana með nemendum og foreldrum. Gott að ræða við foreldrana um hugmyndir að viðburðum fyrir veturinn og mikilvægt að tímasetja þá. Þá er gott að 1-2 séu ábyrgðir fyrir því að viðburðinn og tímasetningin sé fylgt eftir.
Hvar bóka ég afnot af skólanum? Við hvern tala ég?
Til að bóka fundi og viðburði í skólanum, utan skólatíma er best að hafa samband við ritara skólans.
Hugmyndir að viðburðum fyrir unglinga (13-16 ára)
- Spilakvöld – borðspil, bingó, tölvuleikir eða þemakvöld með keppnum.
- Kvikmyndakvöld – sýna vinsæla kvikmynd eða seríur í skólanum eða hjá nemendum.
- Escape room – búa til þrautabraut í skólanum eða fara í skipulagt flóttaherbergi.
- Skemmtikvöld með leynigestum – fá áhugaverða gesti sem koma á óvart.
- Idol-keppni / Hæfileikakeppni – tækifæri til að sýna hæfileika sína.
- Sport- og hreyfiviðburðir – laser tag, paintball, skautar, keila, fótboltamót eða körfuboltamót.
- Matreiðslukeppni – hver getur búið til besta réttinn með tilteknum hráefnum?
- Bökunarkeppni – hver gerir flottustu kökuna? hvaða kaka smakkast best? Hvaða kaka er hugmyndaríkust o.s.frv.
- Ferð í skemmtigarð eða tómstundamiðstöð – t.d. fjallahjólaferð, hjólaferð eða sundlaugarkvöld.
- Viðburðir með samfélagslegu gildi – t.d. sjálfboðaliðastarf eða fjáröflun fyrir góðgerðarmál.
- Karaoke-kvöld – setja upp svið og leyfa nemendum að syngja sín uppáhalds lög.
- Vísindakvöld – gera skemmtilegar tilraunir og uppgötvanir saman.
- Tónlistar- og danskvöld – skipuleggja DJ-kvöld eða dansnámskeið með kennara.
- Myndlistarkvöld – setja upp sköpunarkvöld þar sem hver og einn getur unnið að listaverki.
- Leikir og þrautir – t.d. „Minute to win it“ keppni með skemmtilegum áskorunum eða kahoot spurningarkeppni
- Tískusýning – hvetja nemendur til að hanna eða setja saman flott outfits og halda sýningu.
- Ratsjáleikir – skipuleggja skemmtilega útileit með vísbendingum og verðlaunum.