Stöðu- og framvindupróf lögð fyrir í dag

Í dag hófst fyrirlögn á stöðu- og framvinduprófum Matsferils Miðstöðvar menntunar og skólaþróunar. Það voru nemendur í 10. árgangi sem riðu á vaðið með því að glíma við stærðfræðiprófið. Próffyrirlögnin gekk að mestu leiti vel en þó voru einhverjir tæknilegir hnökrar sem tókst að leysa úr án mikilla vandræða. Þetta er fyrsta fyrirlögnin af sex en allir nemendur í Kópavogi,frá 4. bekk og upp í 10. bekk eiga að taka prófin. Á morgun verða það 8. bekkingar og þar á eftir 9. bekkur. Þegar allir hafa tekið stærðfræðiprófin taka lesskilningsprófin í íslensku við.

Posted in Fréttaflokkur.