Eineltisáætlun

Víð líðum ekki einelti né annað ofbeldi í Kóraskóla. Starfsfólk skólans leitast við að fyrirbyggja einelti og ofbeldi og leysa þau mál sem upp koma á eins farsælan hátt og kostur er. Það er einlægur vilji okkar að skólinn okkar sé öruggur vinnustaður og að þar líði öllum vel. Við sýnum nemendum okkar festu og ákveðni en um leið hlýju og virðingu. Bekkjarfundir eru haldnir reglulega í öllum bekkjum þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipti og virðingu í samskiptum.

Gott samstarf heimila og skóla er lykilatriði í baráttunni gegn einelti. Við leggjum áherslu á að foreldrar séu vel upplýstir og viljum stuðla að aukinni þátttöku foreldra í starfi skólans. Við hvetjum foreldar til að kynna sér áherslur í meðferð eineltismála í handbók um einelti og vináttufærni.

Handbók um einelti og vináttufærni

Við skólann starfar eineltisteymi. Sé grunur um einelti staðfestur er eineltið formlega tilkynnt. Eineltisráð kemur þá saman og vinnur málið samkvæmt flæðiriti.

 Sjá flæðirit eineltisáætlunar.