Foreldrarölt

Foreldrarölt 

Foreldraröltið er sameiginlegt fyrir Hörðuvallaskóla og Kóraskóla. 

Foreldraröltsvaktirnar 2024 – 2025.

  • Útivistarreglur frá 1. september – 1. maí:  13 – 16 ára unglingar mega vera úti til kl. 22:00
  • Útivistarreglur frá 1. maí – 1. september:  13 – 16 ára unglingar mega vera úti til kl. 24:00.
  • Vakin er athygli á því að félagsmiðstöðin Kúlan er opin annan hvern föstudag kl. 19:30-22:45.

Tilgangur foreldrarölts er m.a. að kanna hvar unglingahópar halda sig eftir að leyfður útivistartími er liðinn, kanna hvernig ástandið er á þeim og hvað þeir eru að gera. Ef um miklar hópamyndanir er að ræða er reynt eftir fremsta megni að koma unglingunum heim. 

Öflugt foreldrarölt hefur jákvæð áhrif á hverfisbraginn og það félagslega umhverfi sem börnin okkar og vinir þeirra búa við. Foreldraröltið býr til gott tengslanet og auðveldar samskipti meðal foreldra og forsjáraðila í hverfinu. Besta forvörn óæskilegra hópamyndana unglinga er sýnileiki fullorðinna. Öryggi hverfisins er á okkar ábyrgð og því færri óæskilegar hópamyndanir og því meiri sýnileiki foreldra og forsjáraðila því betri forvörn gegn notkun vímuefna, einelti og ofbeldi. Allir þessir hlutir ógna öryggi hverfisins sem hefur hugsanlega bein eða óbein áhrif á börnin okkar. 

Bekkjarfulltrúar hvers árgangs eru beðnir um að hafa umsjón með mönnun foreldraröltsins í sínum árgangi. Skemmtilegast er þegar margir foreldrar taka þátt, en ýmis mál eru rædd og leidd til lykta á röltinu um hverfið okkar s.s. hvernig er best að fá börnin okkar til að lesa og hvað virkar best til auka áhugann.

Foreldraröltið verður með eftirfarandi sniði:

  1. Rölt verður á föstudagskvöldum. Mæting kl. 22 við aðalinngang Kóraskóla þegar Kóraskóli á röltið.
  2. Röltið er þannig skipulagt að foreldrar 1.-2. bekkjar röltir tvö kvöld en 3. og 4. bekkjar þrjú kvöld og 5. – 10 bekkur fjögur kvöld.
  3. Á mánudegi fyrir rölt munu allir foreldrar í árganginum fá tölvupóst með tengil í skráningarskjal þar sem að þeir skrá sig á rölt. Bekkjarfulltrúar munu svo hvetja foreldra til að taka þátt. Munum að foreldraröltið er á ábyrgð okkar allra. Við erum að sinna samfélagslegri skyldu okkar með að huga að velferð og öryggi barnanna í hverfinu.
  4. Peningaverðlaun verða gefin í vor fyrir þrjú efstu sætin yfir þá árganga sem mæta best á röltið.

Verum dugleg að mæta í röltið það hressir og bætir andann og líkamann.

Hvernig á að hegða sér á foreldrarölti ?

  • Við eigum helst ekki að vera færri en fjögur saman, en röltum þó einhvern vanti.
  • Við röltum um hverfið og erum sýnileg.
  • Við höfum afskipti af börnum og unglingum sem eru einir úti eftir útivistartíma. Bendum á útivistarreglur.
  • Við ræðum ekki málefni einstaklinga sem við mætum á foreldrarölti við óviðkomandi.
  • Við þurfum að vera til taks ef börnin þurfa á okkur að halda.
  • Við þurfum að geta hlustað og leiðbeint án þess að stjórna.
  • Við hringjum á lögreglu (112) ef upp koma árekstrar, ofbeldi, slys, vímuefnaneysla /-sala eða annað sem krefst afskipta. Tökum fram að við séum foreldrar á rölti.
  • Vert er að gefa bílum gaum sem þið teljið tortryggilega, það gæti verið vísbending um landa- og fíkniefnasölu. Skynsamlegt er að skrifa niður bílnúmer og senda til röltstjóra. Þeim upplýsingum er komið áfram til forvarnardeildar lögreglunnar.
  • Við erum ekki lögreglan!  Við ætlum að sýna börnunum að okkur er ekki sama um þau.

Tengiliður stjórnar foreldrafélagsins: Halldór Harri  s. 898 1187

Hér má sjá kort af viðkomustöðum röltara.