FORELDRASAMSTARF – munum að foreldrastarf er gjöf til barnanna okkar
o Hlutverk grunnskólans er í samvinnu við heimilin til búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Samstarf heimila og skóla sem byggist á gagnkvæmri virðingu og trausti, samábyrgð og góðri upplýsingamiðlun stuðlar að velferð nemenda. Starfsfólk skóla og foreldrar þurfa að leitast við að vera nemendum góðar fyrirmyndir.
o Skólinn leggur grunn að samstarfi heimilis og skóla frá upphafi skólagöngu. Heimili og skóli vinna í sameiningu að þroska og velferð barna. Mikilvægt er að kennarar og foreldrar beri gagnkvæmt traust hver til annars og geti rætt í trúnaði um málefni barnsins.
Með góðu samstarfi aflar kennari upplýsinga um hæfileika barns, skapgerðareinkenni og áhugamál. Foreldrar kynnast innviðum skólastarfsins og eru betur í stakk búnir til þess að taka virkan þátt í námi barnsins. Slíkt stuðlar að meira öryggi og vellíðan barna og foreldra og þar með betri árangri í námi og velgengni í starfi. Niðurstöður rannsókna sýna fram á ótvíræða fylgni góðs gengis nemenda í skóla og samstarfs heimilis og skóla.
Foreldrar stuðla að góðri skólamenningu í gegnum þátttöku sína í foreldrastarfinu.