Hrekkjarvaka

Í gær héldum við upp á hrekkjarvökuna með tilheyrandi hryllingi. Nemendur mættu í hrollvekjandi búningum og skreyttu stofur og ganga í anda dagsins. Félagsmiðstöðin Kúlan bauð upp á draugahús kvöldið áður og mötuneytið bar á borð dularfullan plokkfisk sem þó bragðaðist dásamlega. 8. bekkur sigraði auðvitað keppni um hryllilegustu stofuna enda leggja þau metnað sinn og kapp í að koma í búningum og skreyta umhverfi sitt.

Posted in Fréttaflokkur.