Skólahreysti

Það var mikið fjör hjá okkar fólki í Skólahreysti sem fór fram í Varmárskóla 7. maí sl. Einkennislitur liðsins var rauður sem vel mátti merkja á áhorfendapöllunum.

Okkar fulltrúar þau Elmar Rafn Steinarsson, Hekla Hákonardóttir, Hlynur Þorri Benediktsson, Jósef Natan Jensson, Alma Rún Oddsdóttir og Aníta Eik Davíðsdóttir stóðu sig alveg frábærlega vel og voru skólanum til sóma og lentu í 4. sæti í riðlinum.  Stuðningsmenn liðsins voru hvetjandi og jákvæðir og sýndu einmitt þá stemmingu sem við viljum sjá í Kóraskóla.

Posted in Fréttaflokkur.