Uppskeruhátíð menntabúða #Kópmennt voru haldnar í Vatnsendaskóla í gær. Þar kynntu nemendur frá öllum grunnskólum Kópavogs áhugaverð verkefni. Nemendur og kennarar þeirra lögðu mikla vinnu í undirbúning kynninga. Alls voru fluttar 29 kynningar á öllum skólastigum grunnskólans. Kór Hörðuvallaskóla söng fyrir gesti í kaffisamsæti í lok menntabúðanna. Yfir 200 kennarar og starfsmenn skóla sóttu menntabúðirnar og var sérstaklega tekið eftir hve nemendur voru fullir sjálfstrausts og gleði við kynningarnar.
Nemendur Kóraskóla voru með fjórar kynningar;
- Family tree sem er samþætt þemaverkefni á ensku í 8. árgangi.
- Kóró-Detectives sem er samþætt þemaverkefni um ráðgátur í 9. árgangi.
- One Pager sem er leið í skapandi verkefnaskilum í 10. árgangi.
- Útihátíðin mín sem er samþætt þemaverkefni í náttúrufræði, stærðfræði og lykilhæfni í 10. árgangi.