Öskudagur

Öskudagur var skertur dagur í Kóraskóla og hefðbundið skólastarf brotið upp. Nemendur byrjuðu á Skólaþingi þar sem þeir ræddu saman um fjórar spurningar sem valdar voru úr hugmyndum nemenda. Eftir þingið var farið í fjölbreytta stöðvavinnu og svo endað á pizzu veislu hjá Andreu, Cam og Lísu. Hefð er fyrir því að klæðast grímubúningum á öskudaginn og tók starfsfólk Kóraskóla það mjög alvarlega. Nemendur voru hinsvegar frekar ósnortnir af þeirri hefð nema þeir hafi ákveðið allir að leika nemendur þennan dag. Allavegana var dagurinn góður og góð byrjun á vetrarfríi. Skólastarf hefst að nýju mánudaginn 23. febrúar samkvæmt stundatöflum.

Posted in Fréttaflokkur.