Farsældarvika

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttahéruðunum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, efna til sameiginlegrar farsældarviku dagana 9.-13. mars 2026. Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar innleiðingar farsældarlaganna. Lögin fela í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi https://www.kopavogur.is/is/frettir-tilkynningar/farsaeldarvika-hofudborgarsvaedisins-2026-samvinna-i-thagu-barna

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, í samvinnu við Geðheilsumiðstöð barna, býður upp á hádegiserindi á TEAMS alla vikuna þar sem fjallað verður um börn og skjánotkun, tengsl og samskipti, kvíða, málþroska og streitu í foreldrahlutverkinu. Erindin eru opin öllum og hvetjum við forráðamenn til að kynna sér þessi stuttu, áhugaverðu erindi: https://island.is/s/hh/frett/fjoeldi-stuttra-hadegiserinda-i-farsaeldarviku

Nánari upplýsingar um farsæld barna má nálgast á www.farsaeldbarna.is og á https://www.kopavogur.is/is/ibuar/born-og-fjolskyldur/farsaeld-barna

Við í Kóraskóla höfum útbúið plakat með upplýsingum um markmið farsældarlaganna og munu tengiliðir ganga í bekki og kynna sig og markmið laganna fyrir nemendum.

Posted in Fréttaflokkur.