Í dag er bóndadagur, upphaf þorra.
Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir:„Þess vegna var það skylda bænda ‘að fagna þorra’ eða ‘bjóða honum í garð’ með því að þeir áttu að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gekk í garð. Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa.“
Í þá daga lögðu menn ýmislegt á sig til að blíðka veðurguðina eða hafa áhrif á að veðrið færi blíðum höndum um fé og menn. Enn í dag er það ósk okkar að veðrið sé gott og því lögðu nokkrir drengir í 9. árgangi það á sig að hlaupa léttklæddir út á bílaplan og til baka undir styrkri stjórn stelpnanna í hópnum þeirra. Það voru þó ekki allir sem létu hafa sig út í þetta ævintýri.
Gleðilegan bóndadag og megi Þorri verða okkur hliðhollur.

