Árshátíðarvika

Í næstu viku verður árshátíðarvika. Árshátíðin sjálf verður fimmtudaginn 19.mars frá kl.18:30 og kostar 5.000 kr. en boðið verður upp á dýrindis mat, eftirrétt, myndbönd frá 10.bekk ásamt kennurum og endar árshátíðin á balli sem lýkur 22:45. Ávalt hefur verið góð mæting á árshátíðina og mikið fjör. Hefð er að hafa ákveðið þema á hverjum degi í skólanum í þessari viku og þemun í ár eru:
Mánudagur: Treyjudagur
Þriðjudagur: Twin day
Miðvikudagur: 80’s þema
Fimmtudagur: Adam Sandler
Föstudagur: Náttfatadagur
Við hvetjum alla til að mæta í fatnaði í anda þema dagsins.
Föstudagurinn 20.mars verður kósydagur en þá eru nemendur í skólanum frá 8:30 – 12:00. Nemendur mega mæta í náttfötum með sparinesti með sér.

Posted in Fréttaflokkur.