Dynjandi vespugnýrinn og stöðugur straumur nemenda í Krónuna er ótvíræður vorboði í Kóraskóla. Þegar sólin hækkar á lofti skapast ókyrrð í brjóstum nemenda sem setið hafa inni allan veturinn. Nemendur suða í kennurum að fara út í körfubolta eða einhverja leiki. Sumir færa bara stól og borða út á stétt og læra úti í góða veðrinu eins og nemendur í 10. bekk gerðu í morgun í náttúrufræðitíma.

